Mark Elíasar dugði ekki til – Myndband

Elías Már skoraði fyrir Meizhou Hakka þegar liðið féll úr kínversku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/y.meizhou.cn

Elías Már Ómarsson skoraði eina mark Meizhou Hakka þegar liðið féll úr kínversku úrvalsdeildinni í lokaumferð keppninnar í morgun. Meizhou tapaði 5:1 fyrir Beijing Guoan og endaði í næstneðsta sæti deildarinnar með 21 stig.

Mark Elísar kom á 64. mínútu þegar hann minnkaði muninn í 3:1, en lengra komst liðið ekki. Elías gekk til liðs við Meizhou í sumar og var fenginn til að styrkja liðið í fallbaráttunni. Hann kom að sex mörkum í fjórtán leikjum, þar af fjórum sem hann skoraði sjálfur. Markið hjá honum í dag má sjá hér að neðan.

Þrátt fyrir framlag hans féll Meizhou úr deildinni eftir tap í lokaumferðinni og náði ekki nauðsynlegum úrslitum til að halda sér uppi.

Fyrri frétt

Andri Lucas tryggði Blackburn sigurinn

Næsta frétt

Hólmbert skoraði í sigri – Myndband