Hólmbert skoraði í sigri – Myndband

Hólmbert Aron skoraði í sigri í Suður-Kóreu.
Ljósmynd/gwangjufc.com

Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði fyrra mark Gwangju í 2:0-sigri liðsins á Ulsan í næstsíðustu umferð fallriðils úrvalsdeildarinnar í Suður-Kóreu í dag. Markið kom strax á 3. mínútu og var það annað mark Hólmberts á tímabilinu.

Sigurinn staðfesti stöðu Gwangju á toppi fallriðilsins, en liðið hefur þegar tryggt sér áframhaldandi veru í deildinni og er komið með 51 stig.

Gwangju mætir Suwon í lokaumferðinni um næstu helgi áður en liðið leikur til úrslita í bikarkeppninni gegn Jeonbuk. Mark Hólmberts í dag má sjá hér að neðan.

Fyrri frétt

Mark Elíasar dugði ekki til – Myndband

Næsta frétt

Hafrún skoraði í öðrum leiknum í röð