Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði Panathinaikos og spilaði allan leikinn þegar liðið tryggði sér sinn fyrsta sigur á tímabilinu í grísku úrvalsdeildinni með 2:1-sigri á Panetolikos í kvöld.
Það hefur verið stormasöm byrjun á nýju tímabili hjá hinu græna liði frá Aþenu sem hafði aðeins safnað tveimur stigum í fyrstu þremur deildarleikjum tímabilsins. Með sigrinum er liðið komið með fimm stig eftir fjórar umferðir.
Sverrir Ingi hefur barist um fast sæti í hjarta varnarinnar og virðist nú hafa unnið sér traust þjálfarateymisins.
Brasilíumaðurinn Tete, sem áður lék meðal annars með Leicester, Lyon og Galatasaray, jafnaði metin fyrir Panathinaikos í seinni hálfleik, áður en Svíinn Alexander Jeremejeff tryggði liðinu sigurinn með marki undir lokin.