„Super-Sævar“ fór fyrir liði Brann

Frammistaða Sævars vakti mikla athygli í Noregi og Bergens Tidende lýsti honum einfaldlega sem „Super-Sævar“.
Ljósmynd/Brann

Sævar Atli Magnússon fór á kostum í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í gærkvöld og skoraði tvívegis í 2:0-útisigri Brann á Häcken. Frammistaða Sævars vakti mikla athygli í Noregi og Bergens Tidende lýsti honum einfaldlega sem „Super-Sævar“.

Leikurinn hófst með miklum látum en mark var dæmt af Häcken eftir aðeins tvær mínútur og Brann fékk vítaspyrnu eftir korter sem fór forgörðum. Sævar braut síðan ísinn á 28. mínútu og bætti við öðru marki á 57. mínútu, áður en hann fór af velli á 76. mínútu. Eggert Aron Guðmundsson var einnig í byrjunarliði Brann og lék þar til stutt var eftir af leiknum.

Brann, und­ir stjórn Freys Al­ex­and­ers­son­ar, getur með sigri í einvíginu tryggt sér sæti í 4. umferð forkeppninnar og þar með að minnsta kosti þátttöku í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Seinni leikurinn fer fram í Bergen á fimmtudaginn í næstu viku.

Sigur í einvíginu myndi tryggja Brann tekjur upp á nær fimm milljónir evra og veita jafnframt tækifæri til að berjast um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar, þar sem verðlaunafé nemur sjö milljónum evra.

Ljósmynd/Skjáskot af umfjöllun Bergens Tidende í dag.

Svipmyndir úr leiknum:

Fyrri frétt

Sævar hetja Brann í góðum sigri – Sjáðu mörkin

Næsta frétt

Albert lagði upp á Old Trafford – Myndband