Sævar hetja Brann í góðum sigri – Sjáðu mörkin

Sævar Atli var maður leiksins í góðum sigri Brann í Evrópudeildinni í kvöld.
Ljósmynd/Brann

Sævar Atli Magnússon var maður leiksins þegar Brann lagði sænsku bikarmeistarana í Häcken að velli, 2:0, í fyrri leik liðanna í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í Gautaborg í kvöld.

Framherjinn, sem gekk til liðs við norska liðið fyrr í sumar, gerði bæði mörk Brann og hefur nú skorað þrjú mörk í síðustu tveimur Evrópuleikjum. Norski fjölmiðillinn Nettavisen hefur þegar gefið honum viðurnefnið „Euro-Sævar“.

Fyrra markið kom á 28. mínútu eftir mistök í vörn Häcken og örugga afgreiðslu. Seinna markið skoraði hann eftir vel útfærðan sóknarleik og laglega stoðsendingu frá samherja sínum, þegar 57 mínútur voru liðnar af leiknum.

Sævar fagnaði seinna markinu sem minnti á Diogo Jota, portúgalskan leikmann Liverpool sem lést nýverið í hörmulegu slysi. Virðingarvottur sem sýnir tengsl Sævars við enska félagið.

Sævar lék fyrstu 76 mínútunar í leiknum og Eggert Aron Guðmundsson var einnig í byrjunarliði Brann og spilaði nánast allan leikinn. Freyr Alexandersson stýrir liðinu og Davíð Snorri Jónasson leikgreinir andstæðinga liðsins í keppninni.

Liðin mætast á ný í Bergen í næstu viku þar sem sæti í næstu umferð er í húfi. Sigurvegari einvígisins mætir annað hvort AEK Larnaca eða Legia Varsjá.

Sterk frammistaða Elíasar

Elías Rafn Ólafsson sneri aftur í mark danska liðsins Midtjylland sem vann 3:1-útisigur á Fredrikstad í forkeppni Evrópudeildarinnar. Elías hefur verið varamarkvörður það sem af er tímabili, en stóð sig vel í kvöld og gæti hafa spilað sig aftur inn í liðið með þessari frammistöðu.

Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn hjá armenska félaginu Noah sem náði 1:1 jafntefli á útivelli gegn Lincoln Red Imps frá Gíbraltar. Góð úrslit fyrir Noah sem spilar seinni leikinn á heimavelli í næstu viku.

Sverrir Ingi Ingason var ónotaður varamaður hjá Panathinaikos sem gerði markalaust jafntefli við Shakhtar Donetsk á heimavelli.

Mörk Sævars í kvöld:

Fyrri frétt

Mikael lætur að sér kveða hjá Genoa

Næsta frétt

„Super-Sævar“ fór fyrir liði Brann