Mikael lætur að sér kveða hjá Genoa

Mikael Egill hefur vakið athygli með frammistöðu sinni í undirbúningi Genoa fyrir komandi tímabil.
Ljósmynd/Genoa

Mikael Egill Ellertsson hefur vakið athygli með frammistöðu sinni í undirbúningi Genoa fyrir komandi tímabil á Ítalíu. Í umfjöllun ítalska dagblaðsins La Repubblica kemur fram að íslenski landsliðsmaðurinn hafi verið áberandi í æfingaleik gegn japanska háskólalandsliðinu á dögunum, þar sem hann spilaði af mikilli ákefð.

La Repubblica lýsir Mikael sem „cagnaccio“ eða baráttuglöðum og óþreytandi miðjumanni í anda Gennaro Gattuso og segir hann veita núverandi lykilleikmönnum á miðjunni harða samkeppni. Hann hafi sýnt bæði mikla vinnusemi og góðan leikskilning og virðist þegar vera kominn í það leikform sem gæti tryggt honum stærra hlutverk í liði Genoa, undir stjórn Patrick Vieira.

Genoa mætir franska liðinu Rennes á laugardaginn í síðasta æfingaleik sumarsins, áður en alvaran hefst með leik í 32-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar 15. ágúst. Genoa endaði í 13. sæti í ítölsku A-deildinni á síðasta tímabili.

Fyrri frétt

Dagný kveður félagið sem hún studdi frá barnæsku

Næsta frétt

Sævar hetja Brann í góðum sigri – Sjáðu mörkin