Sneri aftur eft­ir fimm mánaða fjar­veru

Gísli Gottskálk sneri aftur á keppnisvöllinn í dag eftir fimm mánaða fjarveru.
Ljósmynd/kkslech.com

Gísli Gottskálk Þórðarson, leikmaður pólska úrvalsdeildarliðsins Lech Poznan, sneri aftur á keppnisvöllinn í dag eftir fimm mánaða fjarveru vegna meiðsla.

Gísli fór í aðgerð á öxl á síðustu leiktíð og hefur verið að glíma við önnur meiðsli að undanförnu en hann var klár í slaginn þegar Lech Poznan tók á móti Cracovia í fyrstu umferð pólsku úrvalsdeildarinnar í dag, þar sem Cracovia vann stórsigur, 4:1.

Gísli var í byrjunarliði Lech Poznan og lék fyrstu 62 mínúturnar í leiknum. Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn fyrir Cracovia.

Næsti leikur Lech Poznan er næsta þriðjudag þegar Breiðablik kemur í heimsókn í forkeppni Meistaradeildarinnar, en Gísli er uppalinn í Breiðabliki.

Fyrri frétt

Á leið til Þýskalands - Vildi ekki framlengja í Noregi

Næsta frétt

Jón Dagur gerði sigurmarkið – Myndband