Skoraði laglegt mark í dramatísku jafntefli

María Catharina skoraði sitt fimmta mark á leiktíðinni.
Ljósmynd/Instagram/@mariiagros

María Catharina Ólafsdóttir Grós lét til sín taka í sænsku úrvalsdeildinni í gær þegar hún skoraði fyrir Linköping í leik gegn Piteå sem endaði með 2:2-jafntefli.

María jafnaði metin í 1:1 á 20. mínútu með laglegu skoti innan teigs sem endaði efst í hægra horninu. Hún lék allan leikinn og hefur nú skorað þrjú mörk í síðustu fimm leikjum. Hægt er að sjá markið hennar í leiknum á vef sænsku úrvalsdeildarinnar.

Linköping náði að jafna metin í 2:2 í uppbótartíma, þar sem markvörður liðsins skoraði skallamark eftir hornspyrnu. Liðið situr enn í næstneðsta sæti deildarinnar með 12 stig, sex stigum frá öruggu sæti þegar sjö umferðir eru eftir.

María hefur verið markahæst hjá liðinu í sumar og er nú komin með fimm mörk á tímabilinu.

Fyrri frétt

Jóhann með stoðsendingu í slæmu tapi – Myndband

Næsta frétt

Elías minnti á sig – Myndband