Elías minnti á sig – Myndband

Elías Már minnti á sig þegar hann skoraði fyrir lið sitt Meizhou Hakka í Kína.
Ljósmynd/y.meizhou.cn

Elías Már Ómarsson skoraði sitt annað mark á leiktíðinni fyrir Meizhou Hakka í kínversku úrvalsdeildinni í dag en liðið tapaði fyrir Qingdao West Coast, 2:1.

Elías Már var í byrjunarliði og lék allan leikinn. Hann kom sér vel fyrir á fjærstönginni eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik og jafnaði metin í 1:1. Framherjinn hefur nú skorað tvö mörk og hefur lagt upp jafnmörg á tímabilinu.

Meizhou Hakka er þó í mikilli fallbaráttu og er liðið í neðsta sæti deildarinnar með 17 stig þegar sex umferðir eru eftir.

Fyrri frétt

Skoraði laglegt mark í dramatísku jafntefli

Næsta frétt

Mikael skoraði fyrsta mark sitt fyrir Genoa – Myndband