Sigur í fyrsta leik Loga – Andri Fannar byrjaði í tapi

Logi og Andri Fannar þreyttu frumraun sína í tyrknesku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/Samsunspor

Logi Tómasson og sam­herj­ar hans í Samsunspor byrjuðu keppn­is­tíma­bilið í Tyrklandi vel því þeir unnu Gençlerbirliği, 2:1, á heima­velli í fyrstu um­ferð tyrknesku úrvalsdeildarinnar í dag.

Logi lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar og átti fínan leik. Þetta var fyrsti deilda­leik­ur Loga í Tyrklandi en Samsunspor keypti hann af Strømsgodset í sum­ar.

Andri Fannar Baldursson þreytti sömuleiðis frumraun sína í tyrknesku úrvalsdeilidnni en hann var í byrjunarliði Kasimpasa þegar liðið tapaði fyrir Antalyaspor, 2:1, í kvöld. Andri Fannar lék fyrstu 85 mínútur leiksins.

Andri Fannar var á dögunum keyptur til Kasimpasa frá ítalska liðinu Bologna.

Fyrri frétt

Jafntefli hjá Stefáni – Tap hjá Guðlaugi Victori

Næsta frétt

Elías opnaði marka­reikn­ing­inn í Kína – Myndband