Elías Már Ólafsson opnaði markareikning sinn í Kína í dag þegar lið hans Meizhou Hakka vann 2:1 sigur á Wuhan Three Towns í kínversku úrvalsdeildinni.
Elías Már gekk til liðs við Meizhou Hakka í sumar og var þetta fjórði leikur hans í deildinni. Hann kom sínum mönnum yfir með marki á 19. mínútu og lagði þar grunninn að sigrinum. Markið má sjá hér að neðan.
Meizhou Hakka er nú í 14. sæti með 16 stig, tveimur stigum frá fallsæti.
Í Suður-Kóreu lék Hólmbert Aron Friðjónsson sinn fyrsta leik fyrir Gwangju í 1:0 tapi gegn Pohang Steelers í úrvalsdeildinni þar í landi. Hann kom inn á sem varamaður á 81. mínútu en hann gekk í raðir liðsins á dögunum.