Fyrirgjöf Sveindísar tryggði Angel City stig – Myndband

Sveindís Jane átti góða fyrirgjöf sem tryggði liði sínu jafntefli í Bandaríkjunum.
Ljósmynd/Angel City

Sveindís Jane Jónsdóttir kom Angel City til bjargar í 1:1 jafntefli gegn San Diego Wave í bandarísku NWSL-deildinni í nótt.

San Diego virtist hafa tryggt sér sigurinn með marki á 86. mínútu, en gestirnir sóttu af krafti á lokasprettinum. Á annarri mínútu í uppbótartíma fór Sveindís upp hægri kantinn og átti nákvæma fyrirgjöf sem Alanna Kennedy skallaði í netið.

Þetta var annar leikur Sveindísar fyrir Angel City eftir komu hennar frá Wolfsburg í sumar. Hún lék allan leikinn, skapaði oft hættu og átti stóran þátt í að liðið situr nú í 11. sæti með 16 stig eftir 15 umferðir.

Stoðsendingu Sveindísar má sjá hér að neðan.

 
 
 
 
 
View this post on Instagram
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

 

A post shared by Angel City FC (@weareangelcity)

Fyrri frétt

Elías opnaði marka­reikn­ing­inn í Kína – Myndband

Næsta frétt

Ísak skorar og skorar – Ólafur skoraði