Arna Eiríksdóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir urðu í dag norskir bikarmeistarar með Vålerenga, sem lagði Rosenborg að velli, 2:0, í úrslitaleik. Arna lék allan leikinn í vörninni, en Sædís hóf leikinn á miðjunni og var tekin af velli í hálfleik.
Sædís hefur þar með unnið bikarmeistaratitil tvö fyrstu árin sín í atvinnumennsku, auk þess að hafa orðið norskur meistari með Vålerenga á síðasta tímabili. Selma Sól Magnúsdóttir lék ekki með Rosenborg í dag þar sem hún hefur verið frá keppni allt tímabilið vegna meiðsla.
Vålerenga varð einnig bikarmeistari í fyrra og hafnaði í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar í ár, sjö stigum á eftir Brann. Liðið mætir næst París FC í Meistaradeild Evrópu.
