Viðar kom HamKam á bragðið – Myndband

Viðar Ari kom liði sínu HamKam á bragðið í stórsigri í Noregi.
Ljósmynd/HamHam

HamKam tryggði sér glæsilegan sigur í norsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Haugesund að velli, 5:0, á heimavelli. Viðar Ari Jónsson sá um að koma heimamönnum á bragðið með fyrsta marki leiksins á 6. mínútu og lagði þar grunninn að afgerandi forystu sem var orðin 5:0 í hálfleik.

Viðar Ari lék allan leikinn og hefur verið áberandi hjá liðinu undanfarnar vikur, en hann hefur nú komið að fjórum mörkum í þremur af síðustu fjórum sigrum HamKam. Með markinu í dag er hann kominn í þrjú deildarmörk á tímabilinu.

Sigurinn lyfti HamKam upp í 11. sæti deildarinnar og liðið hefur fjarlægst fallbaráttuna með sterkum lokakafla þegar aðeins ein umferð er eftir.

Fyrri frétt

Karólína lagði upp tvö og Cecilía varði víti

Næsta frétt

Arna og Sædís bikarmeistarar í Noregi