Preston North End í ensku B-deildinni vinnur nú að því að fá Andra Lucas Guðjohnsen að láni frá belgíska liðinu Gent, samkvæmt blaðamanninum Alan Nixon.
Andri Lucas hefur verið orðaður við Preston áður en þá var fjallað um að félagið hygðist freista þess að kaupa hann fyrir 2,5 milljónir punda. Nú virðist lánssamningur líklegri, á meðan Preston reynir einnig að fá Harrison Armstrong frá Everton.
Belgíski blaðamaðurinn Sacha Tavolieri greindi frá því á dögunum að Utrecht í hollensku úrvalsdeildinni væri meðal þeirra liða sem hefðu einnig áhuga á Andra Lucas og taldi liðið eiga meiri möguleika en Preston á að landa honum.
Andri Lucas hóf feril sinn í yngri flokkum Barcelona og gekk síðar til liðs við Espanyol, Real Madrid og Norrköping í Svíþjóð. Hann var lánaður til Lyngby í Danmörku áður en hann samdi við Gent á síðasta ári, þar sem hann skoraði fimm mörk í 46 leikjum á síðasta tímabili.