Öruggur sigur Köln

Ísak Bergmann var í byrjunarliði Köln sem vann öruggan sigur.
Ljósmynd/Köln

Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði Köln sem vann öruggan 4:1-sigur á Hamburger SV í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Ísak lék á miðjunni og var tekinn af velli á 67. mínútu þegar staðan var 2:1 fyrir Köln, en liðið bætti við tveimur mörkum í uppbótartímanum og tryggði sér þar með sannfærandi sigur.

Köln, sem er nýliði í þýsku úrvalsdeildinni, hefur farið vel af stað á tímabilinu og er nú í 6. sæti deildarinnar með 14 stig eftir níu umferðir.

Valgeir Lunddal Friðriksson var fjarverandi vegna meiðsla þegar lið hans Fortuna Düsseldorf gerði 1:1 jafntefli við Kaiserslautern í þýsku B-deildinni. Brynjar Ingi Bjarnason var sömuleiðis fjarverandi þegar Greuther Fürth tapaði 2:1 fyrir Paderborn.

Lúkas Blöndal Petersson stóð í markinu hjá varaliði Hoffenheim þegar liðið lagði Waldhof Mannheim, 2:0, í þýsku C-deildinni.

Fyrri frétt

Daníel Leó skoraði sig­ur­mark í blá­lok­in

Næsta frétt

Viðar Ari lagði upp tvö mörk