Jóhannes Karl hættur með AB

Jóhannes Karl hefur látið af störfum sem þjálfari AB í Danmörku.
Ljósmynd/AB

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur látið af störfum sem þjálfari danska C-deildarliðsins AB eftir eitt og hálft ár í starfi. Í tilkynningu frá liðinu kemur fram að hann hætti af fjölskylduástæðum og er honum þakkað fyrir farsælt starf og góðar framfarir með liðið. Fótbolti.net greindi fyrst frá.

Jóhannes Karl tók við AB í maímánuði á síðasta ári og stýrði liðinu í 54 leikjum. Undanfarið hefur liðið farið vel af stað og er á toppi dönsku C-deildarinnar með 36 stig eftir 16 umferðir.

Fréttir hafa lengi borist af því að Jóhannes Karl sé á heimleið og muni taka við FH, en gera má ráð fyrir að FH tilkynni um ráðninguna á næstu dögum.

Við brotthvarf hans tekur Fannar Berg Gunnólfsson við sem aðalþjálfari AB. Hann var aðstoðarmaður Jóhannesar Karls bæði hjá ÍA og í Danmörku og nýtur trausts liðsins til að halda starfinu áfram. AB mun síðar tilkynna hver verður honum til aðstoðar.

Fyrri frétt

Sara skoraði tvö mörk í stórsigri

Næsta frétt

Vigdís á skotskónum í sigri Anderlecht – Myndband