Vigdís á skotskónum í sigri Anderlecht – Myndband

Vigdís Lilja var á skotskónum með liði sínu Anderlecht.
Ljósmynd/Anderlecht

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir skoraði í gær fyrra mark Anderlecht í 2:0-sigri liðsins á Standard Liege í belgísku úrvalsdeildinni. Hún kom Anderlecht yfir á 24. mínútu þegar hún fékk góða stungusendingu frá samherja og afgreiddi færið vel. Markið má sjá neðst í fréttinni.

Alls hefur Vigdís skorað sjö mörk í deild og Evrópukeppni á tímabilinu og gefið nokkrar stoðsendingar.

Anderlecht situr í öðru sæti deildarinnar með 20 stig eftir átta umferðir og er tveimur stigum á eftir toppliði Leuven.

Framundan hjá Anderlecht er seinni leikurinn gegn Austria Vín í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins, þar sem andstæðingurinn hefur forskot úr fyrri viðureigninni.

Fyrri frétt

Jóhannes Karl hættur með AB

Næsta frétt

Hafrún Rakel skoraði sigurmarkið – Myndband