Ísak Andri Sigurgeirsson, leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping, gæti verið á leið í stærra hlutverk í sænsku úrvalsdeilidnni. Samkvæmt heimildum Fotbollskanalen hefur Hammarby áhuga á að fá hann til liðsins áður en félagaskiptaglugginn lokar á morgun.
Hammarby horfir til Ísaks Andra þar sem liðið er að undirbúa sig fyrir mögulegar breytingar á leikmannahópnum. Liðið vill tryggja sér nýjan arftaka og hefur Ísak Andri komið þar sterklega inn í myndina.
Hammarby situr sem stendur í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, á meðan Norrköping er í 10. sæti.
Ísak Andri hefur sýnt styrk sinn í sænsku úrvalsdeildinni í ár með því að skora þrjú mörk og leggja upp sjö í 21 leik fyrir Norrköping. Hann hefur fest sig í sessi í byrjunarliðinu og sannað að hann er orðinn mikilvægur hlekkur í liðinu þrátt fyrir ungan aldur.