Æfði ekki með Sandefjord í dag

Stefán Ingi tók ekki þátt í æf­ingu með Sandefjord. Hann er líklega á leið til sænska liðsins Djurgården.
Ljósmynd/Sandefjord

Samkvæmt sænskum fjölmiðlum, eins og greint var frá í dag, er Djurgården í viðræðum við Sandefjord um kaup á Stefáni Inga Sigurðarsyni.

Samhliða þessu greinir TV2 í Noregi frá því að Stefán Ingi hafi ekki tekið þátt í æf­ingu með Sandefjord í dag. Þykir það benda til þess að félagaskipti séu yfirvofandi.

Gunnar Bjønness, stjórnarformaður Sandefjord, vildi ekki tjá sig beint um málið en lét hafa eftir sér nokkur orð.

„Það sem ég get sagt er að tíminn þar sem við seljum ódýrt er liðinn. Fólk heldur að það geti fengið allt svo svakalega ódýrt frá okkur. Það gerist ekki lengur. Við erum með heilbrigðan og traustan rekstur og þurfum ekki að selja nokkurn skapaðan hlut,“ sagði Bjønness við TV2.

Að sögn TV2 hefur Sandefjord sett verðmiða sem er vel yfir 20 milljónum norskra króna, sem jafngildir rúmlega 250 milljónum íslenskra króna.

Fyrri frétt

Djurgården vill fá Stefán Inga

Næsta frétt

Ísak Andri á óskalista Hammarby