Hörður Björgvin Magnússon er samningslaus og hefur ekki fundið sér nýtt félag eftir að samningur hans við Panathinaikos rann út í sumar.
Hörður Björgvin var í þrjú ár hjá Panathinaikos en meiðsli settu svip sinn á þann tíma og hann spilaði aðeins 38 leiki með liðinu. Grískir fjölmiðlar hafa greint frá því að hann hafi verið reiðubúinn að sætta sig við helmings launalækkun til að vera áfram, en Panathinaikos ákvað að endurnýja ekki samninginn.
Í grískum fjölmiðlum hefur Hörður Björgvin verið orðaður við nokkur úrvalsdeildarlið í landinu, þar á meðal OFI Crete, Aris og PAOK. Undir lok júní var jafnvel sagt að hann væri nálægt því að semja við Atromitos, en það gekk ekki eftir þar sem hann átti einnig í viðræðum við AEK Aþenu.
Heimildir Íslendingavaktarinnar herma að uppeldisfélagið Fram hafi reynt að fá hann heim til að ljúka tímabilinu í Úlfarsárdalnum. Sú tilraun bar ekki árangur og er framtíð hans óljós á þessari stundu.