Tvö íslensk mörk í leik Brann og Inter – Myndband

Karólína og Diljá Ýr skoruðu báðar í leik Inter og Brann.
Ljósmynd/Inter

Brann hafði betur gegn Inter, 2:1, í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í gær. Íslenskar landsliðskonur sáu um bæði mörkin í fyrri hálfleiknum.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom Inter yfir strax á 7. mínútu og skoraði þar með sitt fyrsta mark fyrir liðið. Brann jafnaði stuttu síðar þegar Diljá Ýr Zomers skoraði eftir hraða sókn. Sjá má mörkin hér að neðan.

Í marki Inter var Cecilía Rán Rúnarsdóttir sem fékk nóg að gera þegar norska liðið sótti sigurmarkið í seinni hálfleik.

Brann heldur áfram í úrslitaleik um helgina þar sem sæti í Meistaradeildinni er undir, á meðan Inter fær annað tækifæri í Evrópudeild UEFA.

Fyrri frétt

Guðlaugur kynntur til leiks hjá Horsens

Næsta frétt

Hörður Björgvin enn án félags