Guðlaugur kynntur til leiks hjá Horsens

Guðlaugur Victor var í gær kynntur sem nýr leikmaður AC Horsens.
Ljósmynd/Horsens

Guðlaugur Victor Pálsson var í gær kynntur sem nýr leikmaður danska liðsins AC Horsens. Þar mun hann bera treyju númer 26 og er samningurinn til ársins 2027.

Guðlaugur Victor rifti á dögunum samningi sínum við Plymouth Argyle á Englandi eftir rúmt ár hjá liðinu. Hann lék alls 31 leik fyrir Plymouth og bar fyrirliðaband liðsins í byrjun leiktíðar, en sagðist í kveðjuorðum sínum þakklátur fyrir tímann og reynsluna sem hann fékk þar.

AC Horsens, sem leiðir í dag dönsku B-deildina og stefnir á sæti í úrvalsdeild á næsta tímabili, greindi frá komu Guðlaugs Victors á samfélagsmiðlum sínum og lýsti yfir mikilli ánægju með að fá hann í gulu treyjuna.

Guðlaugur Victor er á meðal þeirra sem Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, valdi í gær í hópinn fyrir leiki gegn Aserbaídsjan og Frakklandi í undankeppni HM 2026.

 
 
 
 
 
View this post on Instagram
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

 

A post shared by AC Horsens (@ac_horsens)

Fyrri frétt

Innkoma Amöndu reyndist góð – Alíslenskt mark hjá Braga

Næsta frétt

Tvö íslensk mörk í leik Brann og Inter – Myndband