Hólmbert Aron Friðjónsson og samherjar hans í Gwangju eru komnir í úrslit í bikarkeppninni í Suður-Kóreu eftir útisigur á Bucheon 1995, 2:1, í seinni leik liðanna í undanúrslitum í dag.
Hólmbert Aron var í fyrsta skipti í byrjunarliði Gwangju eftir komu sína til félagsins og lék fyrri hálfleikinn. Gwangju lenti undir snemma í seinni hálfleik en jafnaði metin stuttu síðar og skoraði sigurmark þegar lítið lifði leiks.
Þetta var fjórði leikur Hólmberts fyrir Gwangju en hann kom inn á sem varamaður í fyrri leiknum við Bucheon 1995 í síðustu viku sem endaði með 2:0 sigri. Gwangju vann því einvígið 4:1 samanlagt og mætir Jeonbuk í úrslitum þann 6. desember næstkomandi.
Gwangju er í 6. sæti af 12 liðum í úrvalsdeildinni í Suður-Kóreu þegar sex umferðir eru eftir af tímabilinu.