Brann í Evrópudeildina eftir stórsigur

Íslendingaliðið Brann tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Ljósmynd/Brann

Brann tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar eftir sannfærandi 4:0-útisigur á AEK Larnaca frá Kýpur. Með sigrinum vann liðið einvígið samanlagt 6:1, en fyrri leikurinn í Noregi endaði með 2:1 sigri Brann.

Leikurinn snerist Brann í vil þegar heimamenn misstu mann af velli á 39. mínútu. Niklas Castro skoraði fyrsta markið rétt fyrir hálfleik og í þeim síðari bættu Mads Kristian Hansen, Fredrik Pallesen Knudsen og Joachim Soltvedt við mörkum.

Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon hófu báðir leikinn í byrjunarliði Brann og léku hvor um sig meirihluta leiksins áður en þeir fóru af velli undir lokin. Brann er þar með komið í riðlakeppni í fyrsta sinn síðan árið 2007.

Fyrri frétt

Hólmbert í úrslit í Suður-Kóreu

Næsta frétt

Innkoma Amöndu reyndist góð – Alíslenskt mark hjá Braga