Hákon Rafn Valdimarsson fékk traustið í marki Brentford þegar liðið mætti Bournemouth í gærkvöld í 2. umferð enska deildabikarsins. Hákon spilaði allan leikinn og hélt markinu hreinu í 2:0 sigri sem tryggði Brentford sæti í næstu umferð.
Benoný Breki Andrésson var í byrjunarliði Stockport County sem heimsótti Wigan. Hann lék allan leikinn en það dugði ekki til sigurs. Wigan náði að skora sigurmarkið á 84. mínútu og tryggði sér 1:0 sigur.
Alfons Sampsted hóf leik í liði Birmingham City þegar það tók á móti Port Vale. Hann lék fyrri hálfleikinn en var tekinn af velli í hálfleik. Birmingham tapaði leiknum 1:0 eftir mark undir lok fyrri hálfleiks.
Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliðinu hjá Preston North End í dramatískum leik gegn Wrexham. Hann lék allar 90 mínúturnar, en gestirnir frá Wales skoruðu sigurmark í uppbótatíma og fóru með 3:2 sigur af hólmi.