Norrköping náði kærkomnum útisigri í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld þegar liðið lagði Öster að velli, 2:1. Ísak Andri Sigurgeirsson lagði upp sigurmarkið á 53. mínútu og lék fyrstu 87 mínúturnar. Hann hefur nú átt þátt í tíu mörkum á tímabilinu, þar af lagt upp sjö, og er meðal stoðsendingahæstu leikmanna deildarinnar.
Arnór Ingvi Traustason var einnig í byrjunarliði Norrköping og spilaði þar til hann fór af velli á 79. mínútu. Jónatan Guðni Arnarsson var ónotaður varamaður. Með sigrinum færðist Norrköping upp í tíunda sætið og jók forskot sitt á liðin í fallbaráttunni.
Róbert Frosti Þorkelsson fékk tækifæri af varamannabekknum þegar GAIS mátti þola tap á heimavelli gegn toppliði Mjallby, 2:0.
Þá lék Sveinn Aron Guðjohnsen síðasta stundarfjórðunginn fyrir Sarpsborg í tapleik í norsku úrvalsdeildinni gegn Kristiansund, 1:0. Það var fimmti tapleikur liðsins í röð og er staða þess í fallbaráttunni orðin erfið.
Stoðsending Ísaks: