Óttar Magnús Karlsson skoraði í öðrum leiknum í röð fyrir Renate sem í gær sigraði Pergolettese í fyrstu umferð ítölsku C-deildarinnar á útivelli, 1:0. Óttar lék fyrstu 74 mínútunar í leiknum og skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Óttar Magnús var einnig á skotskónum um síðustu helgi er hann skoraði gegn sama liði í ítalska C-deildarbikarnum.
Óttar Magnús, sem samdi nýverið við Renate til eins árs með möguleika á framlengingu, kom til liðsins frá SPAL þar sem hann lék á síðustu leiktíð.
Markið hjá Óttari í gær má sjá hér að neðan.