Kjartan Már Kjartansson var í dag kynntur sem nýr leikmaður skoska úrvalsdeildarfélagsins Aberdeen.
Kjartan kemur frá Stjörnunni og mun hann hafa skrifað undir fjögurra ára samning við Aberdeen, að því er Sky Sports greinir frá.
Kjartan verður 19 ára síðar í júlí og hefur hann þegar leikið 50 leiki í Bestu deildinni fyrir Stjörnuna, þar af tíu á yfirstandandi tímabili.