Elías Rafn Ólafsson, landsliðsmarkvörður Íslands, átti góðan leik þegar Midtjylland vann 2:0-sigur á Sturm Graz í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar í Herning í kvöld.
Elías hélt markinu hreinu, varði fjögur skot, greip tvær fyrirgjafir og fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína. Hann var valinn besti maður vallarins af tölfræðisíðunni FotMob með 8,4 í einkunn og fékk einnig 7,5 hjá Sofascore.
Fyrsta markið kom á 7. mínútu þegar Oliver Christensen, markvörður Sturm Graz, missti boltann klaufalega í eigið net eftir hornspyrnu. Dómarinn dæmdi upphaflega brot en eftir VAR-skoðun var markið staðfest. Ousmane Diao bætti svo við öðru marki á 88. mínútu og tryggði Midtjylland sigurinn.
Elías, sem hefur nú unnið sér sæti sem aðalmarkvörður Midtjylland eftir langa samkeppni við Jonas Lössl, sýndi mikla yfirvegun og stöðugleika í kvöld. „Það er alltaf erfitt fyrir markmenn þegar mistök sjást strax. Ég hef sjálfur gert mörg og veit hvernig það er,“ sagði hann í samtali við danska blaðamenn að leik loknum og tók fram að hann fyndi til með Christensen, markverði Sturm Graz.
Midtjylland byrjar þar með Evrópukeppnina með þremur stigum og fer næst til Englands þar sem Nottingham Forest tekur á móti liðinu á City Ground-leikvanginum í næstu viku.
Daníel Tristan Guðjohnsen lék allan tímann í fremstu víglínu Malmö sem tapaði 1:2 á heimavelli fyrir Ludogorets Razgrad í Evrópudeildinni.