Sandra sá um Essen

Sandra María Jessen fór á kostum í þýsku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/Köln

Sandra María Jessen fór á kostum í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar hún skoraði bæði mörk Köln í 2:1-sigri á Essen.

Þetta voru fyrstu mörk hennar fyrir liðið eftir komu sína frá Þór/KA og komu þau á aðeins þriggja mínútna kafla í fyrri hálfleik. Sigurinn var sá fyrsti hjá Köln á tímabilinu og hefur liðið nú þrjú stig eftir fjóra leiki.

Í Svíþjóð náði Ísabella Sara Tryggvadóttir þeim áfanga að skora sitt fyrsta mark sem atvinnumaður. Hún gerði þriðja mark Rosengård í 7:0-sigri á Lilla Torg í sænska bikarnum og var þetta jafnframt fyrsta mark hennar fyrir liðið frá því hún gekk til liðs við það frá Val fyrr á árinu.

Arna Eiríksdóttir hélt sæti sínu í vörn Vålerenga sem vann Lyn 2:1 í Noregi. Hún hefur farið vel af stað hjá liðinu og skoraði meðal annars í sínum fyrsta byrjunarliðsleik um síðustu helgi. Sædís Rún Heiðarsdóttir sat á varamannabekknum. Vålerenga er nú í 2. sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Brann.

Bergrós Ásgeirsdóttir lék allan leikinn með Aarau sem tapaði 4:1 fyrir Servette í svissnesku úrvalsdeildinni. Aarau er aðeins með eitt stig eftir fimm umferðir.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð í marki Inter í 2:1-tapi gegn Juventus í undanúrslitum deildabikarsins á Ítalíu. Hún lék allan leikinn en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var á bekknum og fékk ekki tækifæri.

Þá kom Hlín Eiríksdóttir inn á sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik þegar lið hennar Leicester vann 5:1-stórigur á Ipswich í ensku bikarkeppninni.

Fyrri frétt

Sveinn og Davíð á skotskónum

Næsta frétt

Elías Rafn lokaði markinu í Evrópudeildinni