Djurgården vill fá Stefán Inga

Djurgården vinnur nú að því að tryggja sér þjónustu Stefáns Inga.
Ljósmynd/Sandefjord

Sænska úrvalsdeildarliðið Djurgården vinnur nú að því að tryggja sér þjónustu Stefáns Inga Sigurðarsonar frá Sandefjord í Noregi.

Samkvæmt fjölmiðlum í Svíþjóð, þ. á m. Smålandsposten og Expressen, hafa félögin átt í viðræðum og ganga viðræður vel. Talið er að kaupverðið geti numið um 20 til 22 milljónum sænskra króna, eða rúmum tveimur milljónum evra. Stefán Ingi, sem er 24 ára gamall, er samningsbundinn Sandefjord til ársins 2027 og hefur vakið mikla athygli með frammistöðu sinni í Noregi.

Á yfirstandandi leiktíð hefur hann skorað ellefu mörk í fimmtán leikjum í norsku úrvalsdeildinni og er á meðal markahæstu leikmanna deildarinnar. Frá því að hann gekk til liðs við Sandefjord síðasta sumar hefur hann alls skorað 15 mörk og lagt upp tvö í 31 keppnisleik.

Djurgården, sem er í áttunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar eftir 21 umferð, er á sama tíma að glíma við hugsanlegt brotthvarf lykilmanna úr sóknarlínunni. Félagið hefur því augastað á Stefáni Inga sem mögulegum eftirmanni og vilja þar með styrkja framlínuna áður en félagaskiptaglugginn lokar í Svíþjóð á morgun. Mikael Neville Anderson leikur með liðinu.

Fyrri frétt

Hörður Björgvin enn án félags

Næsta frétt

Æfði ekki með Sandefjord í dag