Diljá lagði upp í fyrsta byrj­un­arliðsleikn­um

Diljá Ýr fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Brann og nýtti það vel.
Ljósmynd/brann.no

Diljá Ýr Zomers fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Brann í norsku úrvalsdeildinni í dag og nýtti það vel í 3:0 sigri liðsins á Lilleström. Hún átti stoðsendinguna að fyrsta marki leiksins á 28. mínútu.

Þetta var annar leikur Diljár með Brann eftir að hún gekk til liðs við félagið frá Leuven í sumar. Með sigrinum heldur Brann toppsætinu með 41 stig, stigi meira en Vålerenga sem lagði Roa 3:0. Sædís Rún Heiðarsdóttir lék þar síðustu 20 mínúturnar fyrir Vålerenga.

Marie Jóhannsdóttir spilaði fyrri hálfleikinn í 3:1 sigri Molde á Ham/Kam í norsku B-deildinni og er liðið í öðru sæti með 27 stig.

Í Svíþjóð var Fanney Inga Birkisdóttir varamaður hjá Häcken sem vann Djurgården 4:1 og í Danmörku sat Hafrún Rakel Halldórsdóttir allan leikinn á bekknum þegar Bröndby og Fortuna Hjörring gerðu markalaust jafntefli.

Fyrri frétt

Daníel lagði upp gegn toppliðinu

Næsta frétt

Jafntefli hjá Stefáni – Tap hjá Guðlaugi Victori