Daníel lagði upp gegn toppliðinu

Daníel Tristan lagði upp gegn toppliði Mjällby.
Ljósmynd/Malmö

Malmö fékk topplið Mjällby í heimsókn í sænsku úrvalsdeildinni í dag og tapaði 3:1. Gestirnir voru tveimur mörkum yfir þegar klukkutími var liðinn af leiknum.

Arnór Sigurðsson var í byrjunarliði Malmö en fór af velli á 59. mínútu fyrir Daníel Tristan Guðjohnsen. Daníel lagði upp mark fyrir Kenan Busuladzic á 70. mínútu og minnkaði þar með muninn í 2:1.

Mjällby tryggði sér þó sigurinn með marki undir lok leiks og er áfram á toppi deildarinnar með 46 stig. Malmö, sem er ríkjandi Svíþjóðarmeistari, er í fjórða sæti með 33 stig.

Gísli Eyjólfsson byrjaði hjá Halmstads og lék fyrstu 78 mínúturnar í 1:0 tapi gegn Sirius í dag. Halmstads er í 12. sæti í sænsku úrvalsdeildinni af 16 liðum og með 18 stig, aðeins fjórum stigum frá fallsæti eftir 19 umferðir.

Í norsku úrvalsdeildinni kom Viðar Ari Jónsson inn á 60. mínútu í 1:0 tapi HamKam, sem er í fallumspilssæti með 17 stig eftir 17 umferðir.

Jóhannes Kristinn Bjarnason kom inn á sem varamaður á 80. mínútu hjá Kolding í 2:0-útisigri liðsins á Esbjerg í dönsku B-deildinni. Breki Baldursson var ónotaður varamaður hjá Esbjerg en Ari Leifsson tók út leikbann hjá Kolding.

Þá kom Ólafur Dan Hjaltason inn á sem varamaður á 68. mínútu hjá Aarhus Fremad í 3:1 sigri gegn Hillerod.

Fyrri frétt

Albert lagði upp á Old Trafford – Myndband

Næsta frétt

Diljá lagði upp í fyrsta byrj­un­arliðsleikn­um