Besti maður vall­ar­ins í Danmörku

Guðlaugur Victor lék eins og klett­ur í vörn Horsens þegar liðið fór á toppinn.
Ljósmynd/Horsens

Guðlaugur Victor Pálsson var áberandi í vörn AC Horsens þegar liðið vann Esbjerg í dönsku B-deildinni í dag.

Íslenski landsliðsmaðurinn var að leika sinn annan deildarleik fyrir Horsens eftir komuna frá Plymouth og stjórnaði varnarleiknum af öryggi. Hann fékk 8,2 í einkunn hjá FotMob og var þar með besti leikmaður vallarins.

„Íslenskur klettur bjargaði AC Horsens,“ skrifaði Horsens Folkeblad í umfjöllun sinni og lýsti Guðlaugi Victori sem afar öruggum varnarmanni.

Horsens er nú aftur komið á toppinn með 18 stig eftir tíu umferðir. Breki Baldursson var ónotaður varamaður hjá Esbjerg, sem er í 6. sæti með 15 stig.

Fyrri frétt

Mikael skoraði fyrsta mark sitt fyrir Genoa – Myndband

Næsta frétt

Brann hafði betur gegn Sandefjord