Arna til Vålerenga

Arna Eiríksdóttir hefur gengið til liðs við Vålerenga í Noregi.
Ljósmynd/Vålerenga

Arna Eiríksdóttir er orðin leikmaður Vålerenga í Noregi. Hún hefur skrifað undir samning til ársins 2028 við félagið sem er ríkjandi meistari í norsku úrvalsdeildinni.

Arna, sem verður 23 ára í næstu viku, hefur verið lykilmaður hjá FH í ár og einn besti varnarmaður Bestu deildarinnar. Hún á að baki 111 leiki í efstu deild með fjórum liðum og hefur skorað ellefu mörk auk þess að spila tvo landsleiki með A-landsliði Íslands.

„Arna er líkamlega sterk í einvígjum, góð í loftinu, róleg með boltann og hefur átt fínt tímabil á Íslandi,“ sagði Steinar Pedersen, íþróttastjóri Vålerenga, þegar félagið tilkynnti kaupin í dag.

Arna sjálf segist hlakka til nýrrar áskorunar. „Félagið er þekkt fyrir að vera sterkt í að þróa leikmenn og ég hlakka mikið til að spila hér,“ sagði hún.

Vålerenga er í 2. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Brann og mætir Ferencváros í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Sædís Rún Heiðarsdóttir leikur með Vålerenga.

Fyrri frétt

Þung byrjun hjá Hlín og Leicester – Ingibjörg sá rautt

Næsta frétt

Daníel Freyr á lista yfir efnilegustu leikmenn heims