Þung byrjun hjá Hlín og Leicester – Ingibjörg sá rautt

Hlín lék í tapi gegn Manchester United og Ingibjörg fékk að líta rautt spjald í sínum fyrsta leik með Freiburg.
Ljósmynd/Leicester

Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliði Leicester City í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag, þegar liðið mætti Manchester United á útivelli. Heimakonur réðu ferðinni og leiknum lauk með 4:0 sigri Manchester United.

Hlín lék í fremstu víglínu Leicester City, fékk 65 mínútur og var tekin af velli þegar staðan var 2:0.

Ingibjörg Sigurðardóttir lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Freiburg þegar liðið heimsótti Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni. Freiburg komst yfir í fyrri hálfleik og virtist stefna í sigur, en á 81. mínútu var dæmt á Ingibjörgu í teignum. Hún fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt og Bremen jafnaði úr vítaspyrnunni sem fylgdi í kjölfarið. Leiknum lauk með 1:1 jafntefli. Ingibjörg gekk til liðs við Freiburg frá Brøndby í sumar.

Þá kom Hafrún Rakel Halldórsdóttir inn á sem varamaður hjá Brøndby á 84. mínútu í 4:0-stórsigri gegn OB í dönsku úrvalsdeildinni. Brøndby er í fimmta sæti af átta liðum eftir fjórar umferðir.

Fyrri frétt

Karólína skoraði fyrir Inter – Myndband

Næsta frétt

Arna til Vålerenga