Andri Fannar kostaði um 70 milljónir

Kasimpasa frá Tyrklandi greiddi Bologna á Ítalíu um 70 milljónir fyrir Andra Fannar.
Ljósmynd/Kasimpasa

Tyrkneska úrvalsdeildarliðið Kasimpasa greiddi Bologna á Ítalíu um 500 þúsund evrur, eða um 70 milljónir íslenskra króna, auk bón­us­greiðslna, fyrir Andra Fannar Baldursson. Þetta kemur fram á vef Quotidiano Sportivo í dag.

Í síðasta mánuði framlengdi Bologna samning Andra Fannars um eitt ár og því þurfti Kasimpasa að kaupa hann. Andri Fannar skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Kasimpasa.

Andri Fannar lék aðeins 16 leiki hjá Bologna en hann lék á lánssamningi hjá liðunum FC Kaupmannahöfn, NEC Nijmegen og Elfsborg í Svíþjóð á síðustu árum.

Kasimpasa endaði í 10. sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Liðið er frá Beyoglu, sem er út­hverfi í Ist­an­búl, höfuðborg Tyrklands. Fyrsti leikur liðsins á komandi leiktíð er þann 9. ágúst.

Fyrri frétt

Ísak allt í öllu og skoraði frábært mark – Myndband

Næsta frétt

Opinberar tölur: Íslenskir leikmenn keyptir fyrir 4,5 milljarða á þessu ári – Albert dýrastur