Albert Guðmundsson skoraði þriðja og síðasta mark Fiorentina í 3:0-útisigri liðsins gegn Rapid Wien í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í dag.
Albert hóf leikinn á varamannabekknum en kom við sögu á 76. mínútu og gerði fljótlega vart við sig. Hann fékk sendingu frá Eddy Kouadio inn í teignum og afgreiddi færið snyrtilega með vinstri fæti í fjærhornið. Markið hjá Alberti má sjá hérna.
Fiorentina hefur hafið deildarkeppnina af miklum krafti og er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína.
Kjartan Már Kjartansson var ekki í leikmannahópi Aberdeen sem heimsótti AEK frá Aþenu. Skoska liðið átti erfitt uppdráttar og tapaði stórt, 6:0. Aberdeen situr nú á botni keppninnar án stiga, en Kjartan Már er ekki skráður í leikmannahóp liðsins í keppninni.