Valgeir lagði upp jöfnunarmarkið

Valgeir Lunddal átti þátt í að Fortuna Düsseldorf fór áfram.
Ljósmynd/RP Online

Valgeir Lunddal Friðriksson átti þátt í að Fortuna Düsseldorf fór áfram í þýsku bikarkeppninni í dag. Düsseldorf vann 4:2 endurkomusigur gegn fjórðu deildarliðinu Schweinfurt eftir að hafa verið 1:0 undir í hálfleik.

Valgeir kom inn á í byrjun seinni hálfleiks og lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Shinta Appelkamp á 65. mínútu. Cedric Itten, Florent Muslija og Appelkamp bættu við mörkum og tryggðu Düsseldorf sigurinn.

Þá var Jón Dagur Þorsteinsson í byrjunarliði Hertha Berlin sem fór í heimsókn til Preussen Munster. Hann lék fyrstu 76 mínúturnar í leiknum. Ekk­ert mark var skorað í venju­leg­um leiktíma og fram­leng­ingu og því þurfti að efna til víta­spyrnu­keppni, þar sem Hertha Berlin hafði betur, 5:3.

Fyrri frétt

Gullkistan: Tíu glæsimörk Rúnars Más

Næsta frétt

Tap hjá Andra í Tyrklandi