Tómas Bent Magnússon, 22 ára miðjumaður, hefur gengið til liðs við skoska úrvalsdeildarfélagið Heart of Midlothian frá Val. Hann skrifaði undir þriggja ára samning í dag og mun hefja nýjan kafla á ferli sínum í Edinborg.
Tómas kom til Vals frá ÍBV fyrir þetta tímabil og festi sig fljótt í sessi sem lykilmaður. Frammistaða hans í Bestu deildinni og í Evrópuleikjum Vals í sumar vakti athygli erlendra félaga, þar á meðal Hearts.
Félagið staðfesti kaup Tómasar fyrr í dag og gæti hann verið kynntur stuðningsmönnum Hearts á Tynecastle-leikvanginum í kvöld, þegar liðið mætir til leiks í fyrstu umferð skosku úrvalsdeildarinnar.