Kolbeinn Þórðarson skoraði fyrir IFK Gautaborg í 3:0 sigri liðsins á heimavelli gegn Degerfors í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Kolbeinn lék allan leikinn á miðjunni hjá Gautaborg og skoraði annað mark liðsins rétt undir lok fyrri hálfleiks. Markið skoraði hann með skoti fyrir utan teig sem fór af varnarmanni, sem má sjá hér að neðan.
Kolbeinn hefur nú skorað fimm deildarmörk á leiktíðinni fyrir Gautaborg, sem er í 7. sæti með 28 stig eftir 18 umferðir.