Sveinn og Davíð á skotskónum

Sveinn Aron og Davíð Snær skoruðu báðir í norska bikarnum.
Ljósmynd/Sarpsborg

Nokkrir íslenskir leikmenn léku lykilhlutverk í bikarkeppnum víða um Evrópu í kvöld.

Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði þriðja mark Sarpsborg í ævintýralegum leik gegn Kjelsås í norska bikarnum. Eftir 5:5-jafntefli í framlengingu tryggði Sarpsborg sér sæti í 16-liða úrslitum með sigri í vítaspyrnukeppni, 6:5.

Davíð Snær Jóhannsson skoraði eitt marka Álasunds í 3:1-sigri liðsins á Lysekloster og lék allan leikinn ásamt Ólafi Guðmundssyni. Hilmir Rafn Mikaelsson lék allan tímann með Viking sem vann Eik Tønsberg 2:0.

Ísak Snær Þorvaldsson lék allan leikinn fyrir Lyngby í 2:0-tapi gegn FC Kaupmannahöfn, þar sem Viktor Bjarki Daðason sat á bekknum.

Davíð Kristján Ólafsson var í byrjunarliði Cracovia sem vann 5:1 á móti Leczna í pólsku bikarkeppninni.

Guðmundur Þórarinsson spilaði frá byrjun þegar Noah hafði betur gegn Van, 2:1, í Armeníu. Hjörtur Hermannsson kom svo inn af bekknum í hálfleik hjá Volos í leik gegn Atromitos í gríska bikarnum sem endaði 1:1.

Fyrri frétt

Logi í liði vikunnar í Tyrklandi

Næsta frétt

Sandra sá um Essen