Stefán Ingi Sigurðarson lék stórt hlutverk þegar Sandefjord vann glæsilegan 6:2-útisigur á Strømsgodset í norsku úrvalsdeildinni í dag. Framherjinn skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og er nú kominn með 15 deildarmörk á tímabilinu.
Það tók Stefán enga stund að koma Sandefjord á bragðið, því strax á fyrstu mínútu leiksins slapp hann einn í gegn eftir fína stungusendingu og afgreiddi færið af öryggi í fjærhornið. Hann bætti síðan við öðru marki sínu eftir rúmlega hálftíma leik þegar hann fylgdi vel á eftir í teignum eftir hornspyrnu og skoraði af stuttu færi, sem breytti stöðunni í 3:1 fyrir Sandefjord.
Hægt er að sjá mörkin hjá Stefáni á vef TV2 í Noregi; það fyrra og seinna.
Heimamenn í Strømsgodset náðu að minnka muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiks, en eftir leikhlé tók Sandefjord öll völd á vellinum. Liðið bætti við þremur mörkum í seinni hálfleik sem tryggðu öruggan sigur. Stefán var tekinn af velli á 78. mínútu eftir mjög góðan leik.
Með frammistöðunni í dag er Stefán nú aðeins tveimur mörkum á eftir markahæsta leikmanni deildarinnar og heldur áfram að vera í baráttunni um gullskóinn þegar aðeins ein umferð er eftir. Sigurinn lyfti Sandefjord upp í 5. sæti deildarinnar.
Slæmt tap hjá Brann
Brann átti fá svör þegar liðið mætti Molde á útivelli og tapaði 4:0. Jafnt var á flestum vígstöðum í fyrri hálfleik, en eftir leikhlé náðu heimamenn undirtökunum og skoruðu þrjú mörk á stuttum kafla áður en fjórða markið leit dagsins ljós í uppbótartíma.
Úrslitin bæta gráu ofan á svart hjá lærisveinum Freys Alexanderssonar, sem hafa nú aðeins fengið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum og eru þar með úr leik í kapphlaupinu um sæti í Meistaradeild Evrópu. Eggert Aron Guðmundsson lék allan leikinn, en Sævar Atli Magnússon var fjarverandi vegna meiðsla.
Þrátt fyrir erfiðan kafla er Brann nú þegar búið að tryggja sér sæti í forkeppni Sambandsdeildarinnar og á möguleika á forkeppni Evrópudeildarinnar, ráðist úrslit lokaumferðarinnar þeim í hag.