Sara Björk Gunnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Al-Qadsiah og leikur áfram með liðinu í Sádi-Arabíu á komandi tímabili.
Hún gekk í raðir liðsins á síðasta ári og átti gott tímabil. Í 19 leikjum í deild og bikar skoraði hún 11 mörk og lagði upp sex, en Al-Qadsiah hafnaði í 3. sæti deildarinnar.
Sara Björk, sem er 34 ára, hefur átt langan og glæsilegan atvinnumannaferil. Eftir að hafa leikið með Haukum og Breiðabliki hélt hún út í atvinnumennsku árið 2011, fyrst til Rosengård í Svíþjóð og lék síðar með Wolfsburg, Lyon og Juventus.
Á landsliðsferli sínum lék hún 145 A-landsleiki fyrir Ísland og skoraði 24 mörk.