Ísak Andri Sigurgeirsson er næst efstur á lista yfir flestar stoðsendingar í sænsku úrvalsdeildinni þegar tímabilið er rétt rúmlega hálfnað í Svíþjóð.
Ísak hefur lagt upp fimm mörk fyrir Norrköping á tímabilinu og skorað tvö sjálfur. Norðmaðurinn Tobias Heintz hjá IFK Gautaborg er efstur á listanum með sex stoðsendingar, en Ísak deilir öðru sætinu með tveimur öðrum leikmönnum.
Ísak, sem er 21 árs, gekk í raðir Norrköping fyrir tveimur árum og hefur leikið alls 54 leiki fyrir liðið. Í þeim leikjum hefur hann skorað tólf mörk og lagt upp sex.
