Twente greiddi um tvær milljónir evra fyrir Kristian Hlynsson frá Ajax í sumar og er tæknilegur ráðgjafi Twente, Jan Streuer, sannfærður um að félagið hafi gert frábær kaup.
„Kristian hefur alla burði til að verða frábær leikmaður. Ef hann hefði verið fastamaður í liði Ajax þá hefði kaupverðið numið fimmtán milljónum evra. Við nálgumst leikmenn á meðan þeir eru ekki komnir á það stig,“ sagði Streuer í samtali við 1Twente.
Twente hefur ítrekað byggt lið sitt upp með ungum leikmönnum sem ekki fengu tækifæri hjá stærri félögum. Streuer bendir á dæmi eins og Anass Salah-Eddine, sem félagið fékk ódýrt frá Ajax og seldi síðar til Roma fyrir meira en tíu milljónir evra.
Samkvæmt markaðsmati Estimated Transfer Value er virði Kristians nú þegar metið á 5,1 milljón evra, um þremur milljónum hærra en kaupverðið. Í síðasta leik gegn Heerenveen átti hann stóran þátt í marki og var valinn maður leiksins af stuðningsmönnum.
Kristian er á meðal þeirra sem Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, valdi í dag í hópinn fyrir leiki gegn Aserbaídsjan og Frakklandi í undankeppni HM 2026.