Freyr prýðir forsíðu VG

Freyr prýddi forsíðu íþróttaútgáfu norska dagblaðsins VG.
Ljósmynd/Brann

Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, prýddi í gær forsíðu íþróttaútgáfu norska dagblaðsins VG eftir 2:1-sigur liðsins á Tromsø um síðustu helgi.

Sævar Atli Magnússon jafnaði leikinn með sínu öðru deildarmarki fyrir Brann eftir stoðsendingu frá Eggerti Aroni Guðmundssyni sem var nýkominn inn á sem varamaður. Denzel De Roeve skoraði síðan sigurmarkið og tryggði liði Freys mikilvægan útisigur.

Brann er í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 36 stig og á nú Evrópuleik við AEK Larnaca á fimmtudag, en um er að ræða fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti í Evrópudeildinni.

Ljósmynd/Pressreader
Fyrri frétt

Elías í liði umferðarinnar

Næsta frétt

Gunnar og Viktor skoruðu í fyrsta leik tímabilsins