Einar Freyr Halldórsson, 17 ára leikmaður Þórs, er á leið til Noregs þar sem hann mun æfa með úrvalsdeildarliðinu Brann næstu daga. Þetta kemur fram á Akureyri.net.
Einar Freyr var í lykilhlutverki með Þór á nýliðnu tímabili í Lengjudeildinni þar sem liðið tryggði sér deildarmeistaratitilinn og sæti í Bestu deildinni að ári. Hann lék alls 16 leiki í sumar og skoraði tvö glæsileg mörk, þ. á m. sigurmark gegn Fylki með þrumuskoti utan teigs og beint úr aukaspyrnu gegn Völsungi.
Þrátt fyrir að hafa verið frá um tíma vegna meiðsla kom hann sterkur inn þegar á þurfti að halda og tók einnig þátt í æfingamóti með U19-landsliðinu í Slóveníu fyrr í þessum mánuði.
Freyr Alexandersson stýrir Brann og hefur sýnt Einari áhuga, en ekkert hefur enn verið ákveðið um samning. Einar ferðast til Noregs ásamt Sigurði Heiðari Höskuldssyni, þjálfara Þórs.
Brann er sem stendur í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 43 stig eftir 21 umferð, sex stigum á eftir toppliði Bodö/Glimt. Í leikmannahópi Brann eru fyrir Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon.