Albert aft­ur orðaður við Roma

Albert er nú aft­ur orðaður við ítalska stórliðið Roma.
Ljósmynd/Fiorentina

Albert Guðmundsson er á ný orðaður við AS Roma, samkvæmt ítölsku blöðunum La Gazzetta dello Sport og Il Messaggero í dag. Þar segir að Rómverjar séu að skoða möguleika á að styrkja sóknarlínuna þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Í umfjöllun miðlanna kemur fram að staða Alberts hjá Fiorentina sé óljós, ekki síst í ljósi stöðu liðsins í ítölsku A-deildinni. Roma hafði einnig augastað á honum síðasta sumar og er hann áfram talinn áhugaverður kostur, þar sem hann getur leikið í fleiri en einni stöðu framarlega á vellinum.

Joshua Zirkzee, leikmaður Manchester United, er sagður efstur á óskalista Roma, en Albert er jafnframt nefndur sem raunhæfur kostur. Fram kemur að Rómverjar séu líklegir til þess að reyna að fá hann á láni í næsta mánuði.

Roma situr sem stendur í 4. sæti ítölsku A-deildarinnar og leikur í Evrópudeildinni, á meðan Fiorentina er á botni deildarinnar og leikur í Sambandsdeildinni.

Fyrri frétt

Katla átti frábæran leik – Svipmyndir

Næsta frétt

Stjóra Orra sagt upp